Fréttir
Niðurstaða hönnunarútboðs á stækkun SAk. Hópur Verkís með hæstu einkunn
Nýr Landspítali (NLSH) hefur birt niðurstöðu í hönnunarútboði I2081 vegna nýs húsnæðis fyrir legudeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Hanna á nýbyggingu fyrir legudeildir í skurð- og lyflækningadeild og dag-, göngu- og legudeild fyrir geðdeild við núverandi húsnæði Sak. Gert er ráð fyrir að um 9.200 m2 nýbygging verði staðsett sunnan við núverandi byggingar og tengd eldra húsnæði.
Lesa meiraMálþing á vegum Spítalans okkar
Á 10 ára afmæli samtakanna Spítalans okkar þann 23. apríl sl. var haldið málþing þar sem sjónum var beint að framtíð Landspítala. Runólfur Pálsson, forstjóri LSH flutti erindið Nýr Landspítali í augnsýn; Áhrif á starfsemi næstu ára. Þá sagði Jón Hilmar Friðriksson, forstöðumaður hjá LSH frá málefnum sem snerta tækni í erindinu Tækninýjungar í nýjum Landspítala og Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH fjallaði um næstu framtíðarverkefni í erindinu Fjölmörg byggingar- og þróunarverkefni næstu árin. Nánar er hægt að fræðast um Spítalann okkar á vef samtakanna.
Lesa meiraÞýskir verkfræðinemendur í heimsókn
Margvíslegir hópar, víðs vegar að, koma á framkvæmdasvæðið við Hringbraut til að fræðast um byggingarnar og starfsemina. Þann 19. apríl síðastliðinn tók NLSH á móti sextán verkfræðinemum frá háskóla í Þýskalandi og eftir að hlustað á kynningu var farið í vettvangsferð um svæðið undir handleiðslu starfsmanna NLSH.
Lesa meira